Fiðrildi í maganum

Nú eru fiðrildin í maganum á mér farin að segja til sín.  Ég hlakka svo til þegar ég fæ að sjá allan skarann minn á eftir.  Ég veit að þau hafa bæði stækkað og breyst mikið á þessum 3 mánuðum  sem ég hef verið hér í Köben.  Veðrið er frábært, 18 stiga hiti og sól, svo það væsir ekki um mann þessa dagana.

 ldanmork 1 148 Þessi mynd er af Prinsessegade 23, þar sem hersingin ætlar að búa næstu dagana.  Þar er frábær bakgarður með leiktækjum og fleiru fyrir krakka.

danmork 1 182 Hérna er skólinn minn.  Hann er inn í miðri Kaupmannahöfn á fallegum stað. 

danmork 1 197 Ég smellti mér á hestbak á Mósa, ágætis hestur, sem var einu sinni á Norðurlandamóti, fæddur í Skagafirði.  Það eru góðar reiðleiðir og mikið gert fyrir hestamann í Roskilde.

danmork 1 144 Við Manni heimsóttum Reyni og Maríu í páskavikunni.  Það var virkilega gaman að hitta þau og eins og þið sjáið hafa þau lítið breyst.  Ekki komið grátt hár á höfuðið á Maríu.

danmork 1 134  Manni að fá sér pulsu á Strikinu.danmork 1 156 Góðar vinkonur í heimsókn

danmork 1 233 Um síðustu helgi voru 100 ár frá því konur fengu kosningarétt hér í Danmörku.  Þær notuðu því tækifærið til að minna á hlutverk sitt í 100 ár og krefjast hærri launa.  Hér eru hjúkrunarfræðingar í verkfalli, svo þetta minnir allt dálítið á Ísland. Gunna notaði tækifærið og fór í kröfugöngu í leiðinni.

danmork 1 220 Það er alltaf notalegt að setjast niður á Ráðhústorginu og fá sér kaffisopa á góðum degi. Tónleikar og fleiri uppákomur voru í boði þennan daginn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl og blessuð !Ég er alltaf að fylgjast með þér,þetta hlýtur að vera yndislegt,heldurðu að þú komir nokkuð heim aftur?Gaman að þú skulir vera að fá heimsókn allra krakkana þinna .Hér er eins stiga frost og norðanátt,ég gæti alveg þegið betra veður.Hanna Sjöfn eignaðits strák 25 apríl.Góðar kveðjur frá Grímsstöðum

Steina

Steinunn (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 22:37

2 identicon

Jæja það eru nú ekki allir í köben nema það sé hætt að telja okkur með og viðerum 5.

Vonandi er gaman hjá ykkur heyrumst seinna.

Auður (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Magnea Kristleifsdóttir

Höfundur

Magnea Kristleifsdóttir
Magnea Kristleifsdóttir
Fréttir frá Köben

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • danmork 1 268
  • danmork 1 214
  • danmork 1 253
  • danmork 1 211
  • danmork 1 257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband